Um okkur
ísbúð Péturs er lítil vefverslun og vefsíða sem komið var á fót til að halda minningu Péturs Uzo á lífi. Markmið síðunnar er að bjóða upp á leiki, föndur, límmiða og fleira sem er í anda hans Péturs. Stefnt er að því að allt sem er á síðunni sé annaðhvort frumhönnun móður hans Péturs Uzo, eða unnið úr hans eigin handverki, leikföng sem hann elskaði, og ýmislegt annað sem er í hans anda og áhuga. Litli bróðir hans Péturs Uzo er gæðastjóri og yfirprófari.
Pétur Uzo var heilbrigður drengur þar til örlítil einkenni gerðu vart við sig, svimi, munnvatnsdropi í munnviki, og einstaka sinnum skortur á jafnvægi. Þetta gerðist allt á örfáum dögum. Þann örlagaríka dag 28. September 2021 gekk hann ásamt mömmu sinni inn á bráðadeild, og síðar þann dag fékk hann þá greiningu að hann væri með æxli í heilastofni og lamast öðrumegin í líkamanum eftir segulómun. Ólæknandi. Hann barðist eins og hetja í 10 mánuði með mömmu sína sér við hlið.
Meira um hans sjúkdóm má finna á www.dipg.is